Fyrirtækið
Garðherinn er fyrirtæki sem sérhæfir sig í umhirðu garða. Reksturinn má rekja allt til ársins 2005, á þeim tíma var aðeins garðsláttur í boði og gengið var með slátturvélina á milli heimila til að bjóða upp á garðslátt. Það var svo árið 2014 sem núverandi eigandi tók við rekstrinum og enn í dag eru viðskiptavinir sem hafa fylgt okkur frá stofnun og erum við afar hreykin og þakklát fyrir það.
Frá upphafi hefur áherslan okkar verið á gæði, áreiðanleika og persónulega þjónustu. Við skiljum að hver garður er einstakur og vinnum náið með viðskiptavinum okkar til að mæta þeirra þörfum og væntingum. Hvort sem þú ert að leita að reglulegri umhirðu eða þarft aðstoð við að umbreyta garðinum þínum í draumaútivistarsvæði, er Garðherinn hér til að hjálpa.
„Við bjóðum upp á framúrskarandi þjónustu við alhliða garðyrkju“
Afhverju að velja okkur?
Það getur verið erfitt og stressandi að velja réttan og traustan aðila í verkið. Markmið okkar er að allir aðilar fari sáttir frá borði enda er okkar helsta lifibrauð meðmæli fyrri kúnna. Við höfum yfir áratuga reynslu og hundruði ánægðra viðskiptavina.
Reynsla
Með áratuga reynslu og hundruði ánægðra viðskiptavina.
Frágangur
Við ábyrgjumst fyrirmyndar frágang frá öllum okkar verkefnum
Gæði
Við notumst einungis besta fáanlega efnið á markaðnum í dag.
Umsagnir viðskiptavina
Björg Árnadóttir
Reynihlíð 11, 105 Reykjavík
Við höfum fengið frábæra þjónustu hjá Garðhernum í þó nokkur ár. Garðurinn minn er ekki þægilegur fyrir sláttuvélar eða orf, þar sem partur af honum er brött brekka með mörgum trjám á stangli. Þeir hafa sinnt þessu vel, fylgjast með og slá eftir þörfum hverju sinni. Takk fyrir okkur og sjáumst í sumar!
Héðinn Sveinbjörnsson
Kársnesbraut 82, 200 Kópavogi
Við fengum Garðherinn til að vinna fyrir okkur og sjáum ekki eftir því. Þjónustan var til fyrirmyndar og við mælum með því að fólk nýti sér Garðherinn.
Hrafn Sigurðsson
Formaður húsfélagsins Austurberg 34
Garðherinn hefur sinnt garðinum okkar í nokkur ár með miklum sóma. Allt hefur staðist sem þeir hafa sagt við mig og það finnst mér vera mikils virði.
Ingimar Sigurðsson
Formaður húsfélagsins Tjarnarmýri 9-15 frá 2008-2020
Garðherinn hefur séð um slátt og almenna umhirðu lóðar okkar í Tjarnarmýri 9-15 árum saman. Vinna þeirra er fagleg og frágangur og snyrtimennska er til fyrirmyndar.